
EINN - 95mín leikin Íslensk kvikmynd.
Myndin er í eftirvinnslu.
Kvikmyndinn EINN fjallar um kvikmyndagerðarmanninn Helga Dag sem er að skrifa sína fyrstu kvikmynd.
Helgi Dagur er íslenskur listamaður, bótaþegi án meina, fjölskyldu faðir, eiturlyfjaneitandi og sófabúi. Helgi vinnur að sinni fyrstu mynd sem byggð er á atburðum liðins árs, eigin reynslu og persónum sem standa honum nærri. Þegar framleiðendur myndarinnar kalla Helga á fund og fara fram á handritsbreytingar fer af stað atburðarrás sem Helga gat ekki órað fyrir. Þær breytingar sem hann færir inn í handritið fara að skila sér í hversdagslífi Helga og án þess að vita af er hann lentur í ævintýri sem hann trúir ekki að hann geti skrifað.
EINN er fyrsta mynd Elvars Gunnarssonar í fullri lengd og skrifaði hann handritið ásamt Guðfinn Ými. Með aðalhlutverk fara Arnþór Þórsteinsson, Þórsteinn Gunnar Bjarnason, María Ellingsen, Darren Foreman, Guðfinnur Ýmir, Vivian Didriksen, Jón Axel Ívarsson, Alexander Dantes, Guðný Lára Árnadóttir og Aníta Von Elvarsdóttir.
Þrátt fyrir breiðan og góðan leikhóp er myndin svokölluð no-budget mynd, en hún var tekin upp fyrir u.þ.b. 1 milljón íkr. Myndin hefur verið í framleiðslu síðan október 2009 og áætlað er að sýna hana í október 2012.
EINN er svört-gamanmynd með alvarlegum undirtón í Íslenskum raunveruleika og ímyndun eins Íslendings.

