top of page
  • Wix Facebook page

HVÍTIR KARLAR - stuttmynd.

Myndin var sýnd í Bíóparadís í febrúar 2012.

Fimm konur og einn ungur drengur, öll með ólíkan bakgrunn, lenda í kröppum dansi þegar hópur karlmanna rænir þeim.

Ástæða mann-ránanna er einföld; karlarnir ætla að uppfylla sínar dekkstu þrár. En maðkur er í mysunni, karlarnir eru miklir bakkabræður og fórnalömbin ekki tilbúin að gefast upp svo auðveldlega.

HVÍTIR KARLAR er nýasta stuttmynd Elvars Gunnarssonar, en hann hefur áður fengið Eddutilnefningar fyrir slík verk. Elvar skrifaði handritið útfrá hugmyndum Vivian Didríksen Ólafsdóttur um hvíta karla, Vivian er kona Elvars. Með aðalhlutverk fara Vivian Didríksen Ólafsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Þórunn Lárusdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Guðfinnur Ýmir.

Hvítir karlar er farsa-kenndur þriller, fullur af blóði, nekt og kolsvörtum húmor.

  • Wix Facebook page
bottom of page